![]() |
| Velkomin á heimasíðu um fólkvanga, friðlönd
og náttúruvætti í Fjarðabyggð
Vinsamlegast
sýnið þolinmæði, síðan er í vinnslu Fólkvangur Neskaupstaðar, friðlýstur árið 1972 og Fólkvangur og friðland í Hólmanesi, friðlýst árið 1973 Auk þess er að finna í Fjarðabyggð náttúruvættið Helgustaðanámu sem er vernduð vegna mikilvægra jarðmyndana. Samkvæmt skilgreiningu Umhverfisstofnunar eru fólkvangar svæði sem samkvæmt náttúruverndarlögum eru friðlýstir sem útivistarsvæði í samvinnu við hlutaðeigandi sveitarfélög. Fólkvangar eru stofnaðir að frumkvæði sveitarfélaga og sjá þau einnig um reksturinn. Tilgangurinn með fólkvöngum er að tryggja almenningi aðgang að svæðum til þess að njóta útivistar. Samkvæmt skilgreiningu Umhverfisstofnunar eru náttúruvætti sérstæðar náttúrumyndanir, s.s. fossar, eldstöðvar, hverir, drangar, hellar og haun, ásamt fundarstöðum steingervinga og merkilegra steinda. Náttúruvætti eru mörg þess eðlis að á þeim hvílir almenn helgi og markmið friðlýsingar er að koma í veg fyrir jarðrask. Á landinu hafa 34 svæði verið friðlýst sem náttúruvætti. Auglýsingar um friðlýsingu náttúruvættisins eru birtar í Stjórnartíðindum og má finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar Hólmanes er að hluta til friðland en samkvæmt skilgreiningu Umhverfisstofnunar kallast friðland það landsvæði sem friðlýst er samkvæmt náttúruverndarlögum vegna sérstaks landslags, gróðurfars eða dýralífs. Markmið friðlýsinga eru mismunandi sem og reglur sem á svæðunum gilda. Friðlönd eru í mörgum tilfellum á landi í einkaeigu eða á afréttum og reglur um þau eru samkomulagsatriði milli rétthafa lands og Náttúruverndar ríkisins. Náttúrustofa Austurlands í samvinnu við Umhverfismálanefnd Fjarðabyggðar hefur umsjón með fólkvangi Neskaupstaðar. Bæði í fólkvangi Neskaupstaðar og í friðlandinu og fólkvangnum í Hólmanesi hefur verið komið fyrir fræðslustígum. |

© Náttúrustofa Austurlands
Mýrargötu 10, 740 Neskaupstað, Sími: (+354)
477-1774, Símbréf: (+354) 477-1923,
Kennitala: 461094-2529 - Netfang: na@na.is
Miðvangi 2, 700 Egilsstaðir, Sími: (+354) 471-2813, Símbréf
(+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu
Austurlands