![]() Barrþröstur
(Zoothera naevia) sést á Íslandi í fyrsta sinn Þann 3. maí hringdi Soffía Ingvarsdóttir á Unaósi í Hjaltastaðaþinghá í Náttúrustofuna og lýsti fugli sem var þar heim við bæ. Lýsingin var það góð að allt benti til þess að hér væri á ferðinni barrþröstur. Því var rokið upp til handa og fóta brunað út í Unaós og með í för slógust fuglaáhugamennirnir Skúli Sveinsson frá Hvannstóði og Hálfdán Helgason Eskfirðingur. Er úteftir kom sýndi Soffía okkur myndir sem hún hafði tekið og var þar með staðfest að fuglinn var barrþrastarkarlfugl. Fuglinn fannst síðan með skógarþröstum við fjárhúsin. Myndir teknar þaðan fylgja hér með. Fyrirliggjandi upplýsingar benda til þess að barrþröstur hafi einungis einu sinni áður sést í Evrópu en frá 14.-23. nóvember 1982 hélt einn fugl sig í Cornwall á Bretlandseyjum. Þessi tegund verpir í Alaska, vestur Kanada og norðvestur Bandaríkjunum en vetrarstöðvar eru aðallega niður vesturströnd Bandaríkjanna. Tegundin er talinn reglulegur flækingur á austurströndinni og er Unaósfuglinn að öllum líkindum þaðan kominn. Sjá líka fréttir um Barrþröstinn á heimasíðu Yann Kolbeinssonar og á fuglavefnum Stafrænar fuglaljósmyndir Barrþrösturinn á Unaósi 3. maí 2004.
|