logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Bleshæna heimsækir Héraðsbúa
Uppfært 23/07/04

Að morgni þess 22. júlí sá Halldór W. Stefánsson bleshænu (Fulica atra) á tjörn sem fyrir veg var innendi Urriðavatns í Fellum. Þegar hann keyrði þar hjá síðdegis var fuglinn enn á sama stað og hringdi hann þá í Skarphéðinn sem kom og myndaði fuglinn. 

Samkvæmt Vigfúsi Hirti Jónssyni hafa bleshænur sýnt sig undanfarin vor á Löngutjörn í útjaðri Egilsstaða. Hann sá þær þó ekki þar í vor. Bleshænan er sjaldgæfur varpfugl á Íslandi en búast má við að henni fjölgi hér á komandi árum ef veðurfar hlýnar. Ekki er vitað til þess að hún hafi verpt á Austurlandi.

Meðfylgjandi myndir tók Skarphéðinn G. Þórisson.

fulica1.jpg (30190 bytes)

fulica2.jpg (25376 bytes)

fulica3.jpg (25571 bytes)

fulica4.jpg (19739 bytes)

fulica5.jpg (21392 bytes)

fulica_kaf.jpg (24257 bytes)

fulica_vapp.jpg (48840 bytes)

  adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands