logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Frjósemi í Snæfellshjörðinni vorið 2004
Uppfært 25/05/04

1.jpg (39908 bytes)

Þann 30. apríl var leitað að hreindýrum á Fljótsdals- og Fellaheiði og í nágrenni Snæfells til að kanna fjölda hyrndra kúa í hjörðinni en hann segir til um hversu margar bera í vor. Yfirleitt er ekki fýsilegt að finna dýrin á þessum tíma úr flugvél en vegna snjóleysis var það nú reynt og tókst ágætlega (sjá myndir). Í töflunni hér að neðan eru niðurstöðurnar sýndar. Það sem kom á óvart var hversu mörg dýr voru komin innarlega á öræfin og þá einkum austan Snæfells. Innstu dýrin þar voru í Þjófagilsflóa og innan Bergkvíslarness. Á Vesturöræfum voru innstu dýrin í Sauðárfit.  Austan Snæfells voru um 300 dýr en tæp 600 á Vesturöræfum. Megnið af dýrunum voru kýr.

Meðfylgjandi myndir tók Skarphéðinn G. Þórisson.

tafla.jpg (34268 bytes)

2.jpg (33344 bytes)

Ef frjósemin nú er borin saman við undanfarin ár sést að hún er svipuð og árið 1980 og 2001 en minni en undanfarin tvö ár (sjá mynd að neðan). Eftir því sem fleiri kálfar og gamalkýr lifa af veturinn má búast við að hlutfall geldra kúa aukist og er það líklegasta skýringin í þessu tilviki

 
graf.jpg (19250 bytes)

3.jpg (27576 bytes)

4.jpg (78643 bytes)

 adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands