 Frá
fuglaskoðun á leirum Neskaupstaðar og Reyðarfjarðar 8. maí 2004
Uppfært 13/05/04
Fuglaskoðun í Neskaupstað
Fuglaskoðun á Reyðarfirði
Frá fuglaskoðun á leirum
í Neskaupstað
Klukkan 11 laugardaginn 8. maí viðraði ekki vel til fuglaskoðunar vegna
óþarflega mikillar rigningar. Samt mættu um tólf mans að ósi Norðfjarðarár og
skoðuðu fugla í fjarsjá Náttúrustofu Austurlands undir regnhlíf. Guðrún Á.
Jónsdóttir, Erlín Emma Jóhannsdóttir og Skarphéðinn G. Þórisson mættu fyrir
hönd Náttúrustofunnar. Sami fjöldi fuglategunda sást og í fyrra með því fráviki
að nú sást dílaskarfur en engin álft. Samtals sáust 27 tegundir á
Norðfirði: Fýll, dílaskarfur, grágæs, rauðhöfðaönd
stokkönd, urtönd, skúfönd, æður, hávella, tjaldur, sandlóa, heiðlóa,
lóuþræll, sendlingur, spói, jaðrakan, stelkur, hrossagaukur, hettumáfur, rita,
silfurmáfur, svartbakur, sílamáfur, kría, þúfutittlingur, maríuerla og hrafn.
Meðfylgjandi myndir tók Skarphéðinn G. Þórisson í Neskaupstað sl. laugardag
Fuglaskoðarar
Ljósm: Skarphéðinn G. Þórisson

Hávellubliki í sumarbúningi
Ljósm: Skarphéðinn G. Þórisson

Óvenju margar hávellur voru á Norðfirði og
sumir blikar enn
í vetrarbúningi
Ljósm: Skarphéðinn G. Þórisson

Æðarbliki í höfninni
Ljósm: Skarphéðinn G. Þórisson

Æðarkolla í höfninni
Ljósm: Skarphéðinn G. Þórisson

Ungur silfurmáfur á gömlu bryggjustaur
Ljósm: Skarphéðinn G. Þórisson
Frá fuglaskoðun á leirum í Reyðarfirði
Laugardaginn 8. maí 2004 var
haldið til fuglaskoðunar á leirunni á Reyðarfirði sem stóð yfir frá kl. 11:00 til
13:00 í kalsarigningu og sá Halldór Walter Stefánsson.
Alls mættu 18 þrátt fyrir frekar lélegt veður og höfðu sumir að
orði að búast hefði mátt við messufalli. Þetta
voru menn á öllum aldri og kjarninn hinn gróni hópur sem ætið mætir.
Afar fáa fugla var að sjá á leirunni sjálfri sem
þátttakendur vildu kenna þeim miklu breytingum um sem þar hafa orðið. Þó voru flestar tegundir mættar af þeim sem
hafa sést í fyrri skoðunum sem helstar skal nefna; heiðlóu, sandlóu, stelk, tjald,
spói, hrossagauk, sendling, tildru, silfurmáf, hettumáf, fýl, ritu, æður, stokkönd,
hávellu, skúfönd (sást fyrr um morguninn), grágæs (m.a. með hreiður) og undir
lokin mættu kríur. Líklega má kenna
veðri um að ekki sáust fleiri tegundir en allir voru sáttir og staðráðnir að mæta
að ári.
Nánar má lesa um fuglaskoðunina á Reyðarfirði og
skoða myndir þaðan á vef Ferðafélags
fjarðamanna

© Náttúrustofa Austurlands
Mýrargötu 10, 740 Neskaupstað, Sími: (+354)
477-1774, Símbréf: (+354) 477-1923
Kennitala: 461094-2529 , Netfang: na@na.is
Miðvangi 2, 700 Egilsstaðir, Sími: (+354) 471-2813, Símbréf
(+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu
Austurlands
|