logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Alhvítur fýll á Borgarfirði eystra
Uppfært 09/06/04

Þann 3. júní sást nær alhvítur fýll (Fulmarus glacialis) á Borgarfirði eystra. Hann var þar með öðrum eðlilegum fýlum sem virtust þó ekkert um hann gefið eins og meðfylgjandi myndir sýna.

Albinismi er erfðagalli sem birtist í því að líkaminn framleiðir ekki nóg litarefni (melanin) í húð, hári, fjöðrum eða augum. Þetta þekkist hjá flestum lífverum og er tíðni þess meðal manna t.d. einn af hverjum 17.000. Hjá fuglum getur þetta verið frá einni fjöður og upp í alhvítan fugl með rauð augu. Hlutalbínar sjást annað slagið en algjörir albínar eru sjaldséðir og lifa oft ekki lengi. Hlutverk litarefnisins er að verja lífveruna gegn útfjólubláum geislum sólar.

Meðfylgjandi myndir tók Skarphéðinn G. Þórisson.

www.albinism.org/

www.birdsofbritain.co.uk/features/mao-jun-01.htm

fyll.jpg (9530 bytes)

fyll1.jpg (26535 bytes)

fyll4.jpg (16467 bytes)

fyll2.jpg (22979 bytes)

 

 adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands