logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Grátrana á Borgarfirði eystra
Uppfært 24/05/04

Jón Sveinsson tilkynnti 23. maí að grátranan væri mætt til hans. Skarphéðinn brenndi samdægurs á Borgarfjörð þar sem tranan tók á móti honum á túninu við Hólaland. Þar djöflaðist hún í hrossataðshrúgum í leit að ánamöðkum. Jón velti því fyrir sér hvort hér væri ekki hugsanlega sama tranan á ferðinni og fyrir tveimur árum.   Sjá http://www.alfasteinn.is

Önnur grátrana er á landinu því þann 14. maí kom ein að Laxamýri í Aðaldal.
Fram til ársins 2000 höfðu 27 grátrönur sést á Íslandi og yfirleitt á vorin. Fyrsta grátranan fyrir Ísland sást á Seyðisfirði vorið 1968. Sjá nánari upplýsingar á Heimasíðu Yann Kolbeinssonar

Meðfylgjandi myndir af Grátrönunni í Borgarfirði eystra tók Skarphéðinn G. Þórisson við Hólaland.

Grus-grus1.jpg (46792 bytes)

Grus-grus2.jpg (45401 bytes)

Grus-grus4.jpg (48245 bytes)

Grus-grus3.jpg (59021 bytes)

 adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands