logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Hníflar farnir að vaxa á fullorðna hreintarfa
Uppfært 15/03/04

Þann 3. mars voru norðan í Ásklifi í Fellum 12 tarfar og þrír kálfar, sex tarfar og einn kálfur neðan við Arnheiðarstaði og 18 tarfar og einn kálfur innan og ofan við Brekkugerði. Tarfar á öðrum vetri báru enn sín horn, reyndar sumir einhyrntir, en fullorðnir tarfar allir kollóttir. Sást í vaxandi dökka hnífla hjá þeim stærstu. Hníflarnir virtust um 5 sm langir. Engar kýr sáust frá þjóðvegi en þær eru allar enn með sín horn (nema þær sem alltaf eru kollóttar). Í næsta mánuði munu síðan geldar kýr fella hornin en þær kelfdu ekki fyrr en um viku eftir burð í maí.

 

Myndarlegur tarfur á öðrum vetri innan og ofan Brekkugerðis í Fljótsdal 3. mars 2004.
Ljósm. SGÞ.

 

Tarfar á öðrum vetri á hlaupum, Hús í baksýn. Ljósm. 3. mars 2004. SGÞ.

 

Kálfur innan og ofan Brekkugerðis í Fljótsdal. Þeir fella ekki hornin fyrr en í maí.
Ljósm. 3. mars 2004. SGÞ.

Tveir fullorðnir tarfar innan og ofan Brekkugerðis í Fljótsdal.
Um 5 sm hníflar komnir á annan þeirra. Ljósm. 3. mars 2004. SGÞ.

 adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands