logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Rákahöfrung rekur á Héraðssand
Uppfært 01/04/04

Þann 29. mars fundu Skúli Sveinsson og Halldór W. Stefánsson nýrekinn höfrung á Háraðssandi. Skarphéðinn G. Þórisson starfsmaður Náttúrustofunnar fór síðar um daginn með Halldóri og Reimari Ásgeirssyni til að kanna hvalrekann betur. Gísli Víkingsson hvalasérfræðingur á Hafrannsóknarstofnun greindi hvalinn eftir myndum sem rákahöfrung (Stenella coeruleoalba). Höfrungurinn var sendur Hafró í heilu lagi.

Næsta haust er Spendýrabók Vöku-Helgafells væntanleg og var Gísli Víkingsson svo vinsamlegur að leyfa okkur að skoða kaflan um rákahöfrunginn. Þar kemur fram að tegundin er fyrst og fremst bundin við hitabeltis- og heittempruð svæði allt í kringum hnöttinn.  Hann er algengasti höfrungurinn í Miðjarðarhafi og ein algengasta hvalategund úthafanna. Fyrir hafði rákahöfrung rekið þrisvar á land (einu sinni fjögur dýr) og er þetta því sjöunda dýrið. Nánari fróðleik um tegundina geta menn aflað sér þegar fyrrnefnd spendýrabók kemur út.

 x325_2525.jpg (26133 bytes)

Rákahöfrungur á HéraðssandiLjósm. SGÞ.

 x325_2528.jpg (36816 bytes)

Rákahöfrungur á HéraðssandiLjósm. SGÞ. 

x325_2538.jpg (42216 bytes)

Reimar Ásgeirsson, Halldór W. Stefánsson og rákahöfrungurinn á Héraðssandi. Ljósm. SGÞ.

 adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands