logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Lúpína ógnar sjaldgæfum og friðlýstum plöntum í Norðfirði
Uppfært 23/07/04

Þann 21. júlí 2004 var farin ferð til að skoða vaxtarstaði sjaldgæfra plantna í fjallinu ofan við þéttbýlið í Neskaupastað. Með í för voru Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur, Benedikt Sigurjónsson formaður Umhverfismálanefndar Fjarðabyggðar, Guðrún Á. Jónsdóttir forstöðumaður Náttúrustofu Austurlands, Karólina Einarsdóttir líffræðinemi sem er að rannsaka lyngbúa, Kristín Ágústsdóttir og Erlín Emma Jóhannsdóttir sérfræðingar á Náttúrustofu Austurlands og einnig  Kristin Guttormsson, Jóna Katrín Aradóttir og Hjalti Einarsson.

Fyrst var litið eftir stinnasefi (Juncus squarrosus) sem er mjög sjaldgæf tegund. Það fannst á tveimur stöðum sem liggja með stuttu millibili rétt austan við skógræktina ofan við bæinn í Neskaupstað. Vitað er um einn stað til viðbótar þar sem stinnasefið hefur fundist í Norðfirði og alls eru þekktir um 10 – 12  vaxtarstaðir á landinu öllu. Í námunda við báða þessa staði sem skoðaðir voru, eru vaxandi lúpínubreiður þannig að þeir munu að öllum líkindum hverfa undir lúpínu (Lupinus nootkatensis) á næstu árum.

Næst var kannaður vaxtarstaður sifjarsóleyjar (Rannunculus auricomus) í skriðum utan við Nesgil í um 380 m hæð. Sifjarsóley er sjaldgæf tegund sem líkist brennisóley. Vaxtarstaðir hennar í skriðunni  eru óspilltir og ekki vofir nein sérstök vá yfir þeim eins og er.

Þriðja tegundin sem var til skoðunar er skollakambur (Blechnum spicant) sem er fremur sjaldgæfur og finnst einungis á snjóþungum svæðum.. Hann fannst í grónum smáhvammi í 260-270 m hæð við utanvert Bakkagil. Vaxtarstaður hans þar enn óspilltur.

skollagro.jpg (77977 bytes)
Gróbær blöð skollakambs eru upprétt
(Ljósm.  Kristín Ágústsdóttir)

skollakambur.jpg (86503 bytes)
Skollakambur (Ljósm.  Kristín Ágústsdóttir)

Að lokum var lyngbúi (Ajuga pyrimidalis) skoðaður. Lyngbúinn er sjaldgæfur og friðlýstur skv. lögum um náttúrvernd.  Hann fannst á tveimur stöðum með stuttu millibili í lækjargili í brekkum ofan við austasta hluta byggðarinnar í Neskaupstað. Á gilbarminum eru þykkar lúpínubreiðum við báða vaxtarstaði lyngbúans þar. Þær munu án nokkurs vafa eyðaileggja þessa vaxtarstaði lyngbúans áður en mörg ár verða liðin.
Lyngbúinn hefur einnig fundist í næsta gili austan við það sem skoðað var í ferðinni og þótt tilvist hans þar hafi ekki verið staðfest í þessari ferð er nær öruggt að hann leynist þar. Það gil er einnig í sömu hættu og hitt á að fyllast af lúpína innan fárra ára.
Miðað við niðurstöður þessa stutta könnunarleiðangurs virðist ástæða til að kanna hvort vá steðjar að vaxtarstöðum sjaldgæfara og friðlýstra tegunda vítt og breitt um landið og leggja á ráðin til að bregðast við þar sem hætta er á ferðum. Spurningin er hver ber ábyrgð á því að kanna þetta og bregðast við ef ástæða er til. 

HjorlogKaro.jpg (82505 bytes)
Hjörleifur og Karólína skoða lyngbúann sem felur sig í lyngmóanum
(Ljósm.  Kristín Ágústsdóttir)

hjorleifur.jpg (139984 bytes)
Hjörleifur skráir vaxtarstað lyngbúa (Ljósm.   Kristín Ágústsdóttir)

lupinaskridur.jpg (78583 bytes)
Lúpínan skríður niður í vel gróið mólendið (Ljósm.  Kristín Ágústsdóttir)

lyngbui2.jpg (82555 bytes)
Lyngbúi (Ljósm.  Kristín Ágústsdóttir)


 adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands