logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Nesskóli heimsækir Náttúrugripasafnið
Uppfært 25/03/04

Undanfarna tvo miðvikudaga hafa nemendur í 1. og 2. bekk Nesskóla komið á safnið og unnið verkefni í hópastarfi undir leiðsögn Sýbillu Guðmundsdóttur kennara.  Þau hafa m.a. leitað að minnsta og stærsta dýrinu á safninu, auk þess hafa þau leitað að Urrara, sæhesti, ánamaðki, slöngu, vaðfuglum og ránfuglum svo eitthvað sé nefnt.   Þá skoðuðu nemendur steinasafnið og dvöldu í barnahorninu þar sem þau máttu m.a. hlusta á fuglasöng, skoða hreindýrshorn og búrhvalstönn, lita og teikna.   Þessar heimsóknir eru skemmtileg upplyfting á meðan safnastarfið er í lágmarki yfir vetrartímann.  Skröltu niður þessa síðu og kíktu á myndir úr heimsókninni miðvikudaginn 24. mars sl.

Eftir páska er von á tveimur hópum til viðbótar frá Nesskóla.   

 DCP_5785.JPG (38989 bytes)

Nemendur hlusta áhugasamir á kennara í upphafi heimsóknar.
Ljósm. KÁ.

 DCP_5787.JPG (42558 bytes)

Eru þær að teikna minnsta eða stærsta dýrið á safninu?  Blöðruselurinn fylgist með.
Ljósm. KÁ.

 DCP_5788.JPG (38372 bytes)

Er hann að klappa selnum?
Ljósm.  KÁ.

DCP_5789.JPG (42196 bytes)

"Varstu búin að sjá örnin?".
Ljósm. KÁ.

DCP_5790.JPG (13397 bytes)

Allt í móðu!
Ljósm. KÁ.

DCP_5793.JPG (62208 bytes)

Áhugasamir nemendur.
Ljósm. KÁ.

 adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands