logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Skógelftingin í Sandvík
Uppfært 13/09/04

sylvaticum.jpg (21919 bytes)
Skógelftingin í Sandvík
(Ljósm: Hjörleifur Guttormsson)

Skógelfting (Equisetum sylvaticum) er mjög sjaldgæf tegund á Íslandi.  Hún hefur fundist á örfáum stöðum á Íslandi,  í Sandvík á Austfjörðum og svo á nokkrum stöðum á Vestfjörðum.  Eyþór Einarsson skráði fundarstað skógelftingu í Sandvík fyrstu manna árið 1960 en síðan þá hafa áhugasamir plöntuskoðaðar geta gengið að vaxtarstöðum í Sandvík með lýsingu Eyþórs "að vopni". 

Í lok ágúst sl. var Hjörleifur Guttormsson á ferð í Sandvík og fann hann þar skógelftingu nokkrum blettum. Telur hann að af gróðursamsetningu á þessum vaxtarstöðum að dæma virðist kjörlendi skógelftingar vera þar sem jarðvegur er vel rakur, jafnvel sírekja, og snjóþekja að jafnaði veruleg. Jafnframt álítur Hjörleifur að líklegt megi teljast að skógelftingin vaxi allvíða í Sandvík og jafnvel á fleiri stöðum í útsveitum á norðanverðum Austfjörðum.

 

adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands