 Hreindýr
festist í neti og drapst
Uppfært 27/05/04
Í gærkvöldi
fóru Viðar Guðmundsson og Marías Kristjánsson í siglingu um Norðfjarðarflóa og
tóku land í Barðsnesi. Ofan við Barðsnesbæinn blasti við þeim heldur
óskemmtileg sjón þar sem dautt hreindýri hékk fast í neti sem strengt hafði verið
á milli staura og líklegast gengt hlutverki hengirúms. Neðri hluti dýrsins var
bara beinagrind og verður að teljast líklegt að rebbi hafi komist í kræsingar
og étið eins langt og hann náði.
Að sögn Viðars er ljóst að dýrið hefur mikið barist um til að reyna að
losa sig því netið var illa flækt um horn þess. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem hreindýr drepast með þessum hætti á Gerpissvæðinu en svo virðist sem forvitni
dýranna dragi þau að slíkum fyrirbærum. Svo festast hornin í böndunum og
dýrin komast hvorki lönd né strönd og hljóta þannig skelfilegan dauðdaga.
Við brýnum fyrir þeim sem dvelja á hreindýraslóðum í óbyggðum að taka
niður bönd, hengirúm og annað slíkt sem dýrin geta fest horn sín í þegar þeir
yfirgefa svæðin.

Hreindýr bera mikil horn sem er auðvelt að
festa í bönd og net sem hanga uppi.
Vonlítið er fyrir dýrin að losa sig úr slíkri prísund.
Ljósm. Skarphéðinn G. Þórisson

© Náttúrustofa Austurlands
Mýrargötu 10, 740 Neskaupstað, Sími: (+354)
477-1774, Símbréf: (+354) 477-1923
Kennitala: 461094-2529 , Netfang: na@na.is
Miðvangi 2, 700 Egilsstaðir, Sími: (+354) 471-2813, Símbréf
(+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu
Austurlands
|