logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Nýr starfsmaður hjá Náttúrustofu Austurlands
Uppfært 25/05/04

Erlín Emma Jóhannsdóttir líffræðingur hefur tekið til starfa á Náttúrustofu Austurlands.   Erlín Emma starfaði áður hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs en hefur nú flust búferlum til Neskaupstaðar.  Á Náttúrufræðistofu Kópavogs starfaði Erlín við rannsóknir á sviði vatnavistfræði. T.d úttekt á vatnalífríki á áhrifasvæði Kárahnjúkavikjunar og umhverfisúttekt á Ástjörn og Hamarskotlæk í Hafnarfirði.   Einnig kom hún að verkefninu Yfirlitskönnun á lífríki íslenskra stöðuvatna.

Erlín er í meistaranámi við Háskóla Íslands og felst verkefni hennar í að kanna fjölbreytileika rykmýs í fjöruvist íslenskra stöðuvatna.  Við bjóðum Erlín velkomna til starfa á Náttúrustofu Austurlands þar sem hún mun sinna fjölbreytilegum verkefnum í samvinnu við aðra starfsmenn stofunnar.

 adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands