![]() Skarphéðinn
farin og Rán tekur brátt til starfa Skarphéðinn G. Þórisson hefur fengið tveggja ára leyfi frá störfum á Náttúrustofunni, en hann hefur undanfarin ár verið verkefnisstjóri hreindýrarannsókna. Skarphéðinn mun dvelja í Malaví í Afríku næstu tvö árin ásamt fjölskyldu sinni, en kona hans starfar þar sem hjúkrunarfræðingur. Við megum eiga von á því að fá skemmtilega pistla um Afríkudvöl Skarphéðins, skreyttar ljósmyndum þegar fram í sækir. Rán Þórarinsdóttir hefur verið ráðin í stað Skarphéðins og mun hún hefja störf í september. Rán er líffræðingur á sviði dýravistfræðinnar og er að ljúka mastersnámi í líffræði við Háskóla Íslands í vetur. Mastersverkefni hennar er stofnvistfræðilegur og atferlisfræðilegur samanburður á ungumhópum ýmissa andategunda og er undir handleiðslu Arnþórs Garðarssonar prófessors. Með námi hefur Rán unnið hlutastörf við kennslu hjá líffræðiskor Háskóla Íslands í ýmsum greinum líffræðinnar s.s. fuglafræði, vistfræði og dýrafræði hryggdýra og hryggleysingja. Auk þess hefur hún verið viðriðin ýmsar vettvangsathuganir á sviði fuglafræði, vistfræði, grasafræði og vatnalíffræði. Við bjóðum Rán velkomna til starfa.
|