![]() Súrsmæra
og lyngbúi rannsökuð Líkt og undanfarin sumur hefur Náttúrustofan sótt um styrki í Nýsköpunarsjóð námsmanna til hinna ýmsu verkefna og þannig veitt ungum og efnilegum náttúrufræðingum tækifæri til að fá störf við sitt hæfi á Austurlandi. Að þessu sinni fékkst styrkur til að rannsaka sjaldgæfar plöntutegundir á Íslandi sem einungis finnast á Austurlandi: Súrsmæru (Oxalis acetosella) og lyngbúa (Ajuga pyramidalis). Markmiðið er að kanna ýmsa þætti í líffræði og vistfræði lyngbúa og súrsmæru á Austfjörðum til að varpa ljósi á hvort þar sé að leita skýringa á því hversu sjaldgæfar þessar tegundir eru á Íslandi. Einkum verður kannað hvort blómgun, fræmyndun, fræþroski á einhver hlut að máli Það er Karólína Einarsdóttir frá Neskaupstað, nemi á 2. ári í líffræði sem mun vinna verkefnið ásamt því að sinna öðrum sumastörfum á Náttúrustofunni.
|