logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Bjöllulilja og síberíugrýta
Uppfært 15/07/04

Bjöllulilja (Pyrola grandiflora) fannst í fyrsta sinn svo vitað sé í Norðfirði í síðustu viku.  Það var Hjörleifur Guttormsson sem gekk fram á plöntuna í landi Grænaness þann 10. júlí sl.  Eins og kemur fram á Íslandsflóruvefnum er bjölluliljan fremur sjaldgæf tegund sem vex í deigum móum og hallandi mýrum, oft einnig í röku kjarrlendi.  Hún vex einkum á norðausturlandi, frá Eyjafirði, austur um og suður í Loðmundarfjörð.  Sunnan Loðmundafjarðar hefur bjölluliljan einungis fundist á þremur stöðum skv. skráningu Náttúrufræðistofnunar: við Sævarenda í Fáskrúðsfirði, ofan við Gerðistekk í Viðfirði og nú síðast ofan Grænaness í Norðfirði.  Hægt er að lesa meir um bjölluliljuna og skoða útbreiðukort hér.

Þá fundu starfsmenn Náttúrustofunnar,   Guðrún og Karólína slæðinginn síberíugrýtu (Claytonia sibirica L.) við sæluhúsið á Fjarðarheiði þann 13. júlí sl. Síberíugrýta er sjaldgæfur slæðingur, bæði á Íslandi og í Skandinavíu og hefur hún einungis einu sinni áður fundist á Austurlandi og þá líka á Seyðisfirði, í skurði í útjaðri bæjarins.   Slæðingar kallast erlendar aðfluttar plöntur, sem eru oft óstöðugar og vaxa aðeins eitt ár eða fá ár á ákveðnu svæði og hverfa svo eða birtast annars staðar.   Þegar slæðingur nær að festa búsetu sína til langframa á ákveðnu svæði kallast hann ílendur slæðingur.  Hér er hægt að skoða myndir og lýsingu á síberíugrýtu á vef um flóru Norður-Írlands

 adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands