logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Hreindýratalning á Snæfellsöræfum 5. og 7. júlí 2004
Uppfært 23/07/04

Dagana 5. og 7. júlí 2004 töldu starfsmenn Náttúrustofu Austurlands, Skarphéðinn Þórisson og Rán Þórarinsdóttir, hreindýr á Snæfellsöræfum,  þ.e. í Sauðafelli, Kringilsárrana, Vesturöræfum, Undir Fellum, á Múla og vestasta hluta Hrauna auk Fljótsdals- og Fellaheiða. Flogið var með TF KLÓ og TF RPM, flugmaður var Stefán Scheving Einarsson. Til aðstoðar var Reimar Ásgeirsson þann fimmta og Árni Valur Skarphéðinsson þann sjöunda. Veður var ágætt til leitar og myndatöku.

1. tafla. Hreindýratalning á Snæfellsöræfum 5. og 7. júlí 2004. 

tafla.jpg (88776 bytes)

Þann 30. apríl fundust 570 hreindýr á Vesturöræfum og 300 austan Snæfells. Um miðjan maí sáust síðan 270 hreindýr á Vesturöræfum utan Sauðár. Talið var líklegt að þau 300 dýr sem vantaði upp á samkvæmt apríltalninguna hafi verið komin inn undir Háöldur og Jökulkvísl. Einnig er mögulegt að einhver dýr hafi farið yfir í Kringilsárrana.

kringilsarranatarfar.jpg (66193 bytes)
1. mynd. Vígalegir tarfar í Kringilsárrana   (Ljósm. Skarphéðinn G. Þórisson)

Upp úr miðjum júní voru a.m.k. 500 fullorðin dýr og mikið af kálfum við Fífuleiruvatn og seinna í Vestaradragi á Vesturöræfum. Einhverjir hópar höfðu þá líka sést innan Sauðár (munnl. uppl. Sigurður Aðalsteinsson og Sveinn Pálsson). Á annað þúsund hreindýr sáust í Sauðaflóa og norðvestan í Hafursfelli seinni partinn í júní (munnl. uppl. Hjörtur Kjerúlf). Þann 4. júlí voru 35 hreindýr þ.a. 8 kálfar í Sauðárkrók í Klausturselsheiði og Svartaldan var sögð hvít af hreindýrum (Aðalsteinn Jónsson).
Engin dýr fundust austan Jökulsár í Fljótsdal í talningunni og aðeins 24 tarfar á Vesturöræfum líklega komnir úr eða á leiðinni í Kringilsárrana.

1170dyr.jpg (120825 bytes)
2. mynd. 1170 hreindýr norðan í Urg norðan Snæfells (Ljósm. Skarphéðinn G. Þórisson)

Af framansögðu sést að mikil hreyfing hefur verið á hreindýrunum og stóri hópurinn sem var í talningunni norðan í Urginum líklega sömu dýrin og Aðalsteinn sá út í Svartöldu þremur dögum fyrr. Nú fundust 2298 hreindýr og eins og undanfarin ár megnið á Fljótsdalsheiði. Í töflu 2 og á fyrstu mynd sést að niðurstaðan nú er nær eins og fyrir tveimur árum með þeirri undantekningu að 2002 voru um 500 dýr á Vesturöræfum sem nú voru á Fljótsdalsheiði.

2. tafla. Samanburður á talningum 2000, 2002, 2003 og 2004.

tafla2.jpg (41792 bytes)

Kálfahlutfall af heild var 33 % sem er mjög gott einkum þegar litið er til þess að fullorðnir tarfar voru 12% af heild. Nú eins og undanfarin ár bar nokkuð á sumrungum.

.

graf.jpg (49515 bytes)
3. mynd. Dreifing hreindýra á Snæfellsöræfum í sumartalningum frá 1965 til og með 2004

  adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands