 Hasskötturinn
- Árangursríkt samstarf fræðaseturs í Búlandinu
Uppfært 27/05/04
Nemendur í Verkmenntaskóla Austurlands
sigruðu landskeppni Ungra vísindamanna fyrr í þessum mánuði með verkefni sínu
Hasskettinum og verða því fulltrúar Íslands í Evrópukeppni Ungra Vísindamanna
ásamt nemanda frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla sem haldin verður í Dublin í
haust.
Forsaga málsins er sú að í byrjun
þessa árs var ákveðið að efna til samstarfs mennta- og rannsóknastofnana í
Búlandinu þegar Verkmenntaskóla
Austurlands skráði sig til þátttöku í
verkefninu Ungir
Vísindamenn. Auk Verkmenntskólans komu
Náttúrustofa Austurlands og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og
lögregluvarðstjórinn í Neskaupstað að verkefninu.
 |
Þrír
nemendur, þau Eva María Þrastardóttir, Elísa
Brynjólfsdóttir og Stefán Þór Eysteinsson
tóku þátt í vekefninu undir leiðsögn líffræðingsins, bóndans og kennarans
Þórðar Júlíssonar frá Skorrastað. Fljótlega kviknaði hugmynd að skemmtilegu
verkefni sem fékk heitið Hasskötturinn þar sem viðfangsefnið var að kanna hvort
mögulegt er að nota ketti við hassleit. Til þess að svara rannsóknarspurningum sínum notuðu
vísindamennirnir aðferðir sálfræði og líffræði og tileinkuðu sér vísindaleg
vinnubrögð og framsetningu efnis. Nemendur framkvæmdu tilraun með kettina tvo:
Einn og Tveir í þar til gerðum þjálfunarkössum þar sem kettirnir voru látnir leita
að ákveðinni lykt. Í stað hass voru tepokar notaðir og þannig færðu
vísindamenn rök fyrir því að hægt væri að temja ketti til að nota lyktarskynið
og þar með að þjálfa þá til fíkniefnaleitar. |
Við óskum Evu
Maríu, Elísu og Stefáni Þór til hamingju með glæsilegan árangur og óskum þeim
góðs gengis í Dublin í haust.
Sjá líka frétt
um Unga Vísindamenn frá í febrúar sl.

© Náttúrustofa Austurlands
Mýrargötu 10, 740 Neskaupstað, Sími: (+354)
477-1774, Símbréf: (+354) 477-1923
Kennitala: 461094-2529 , Netfang: na@na.is
Miðvangi 2, 700 Egilsstaðir, Sími: (+354) 471-2813, Símbréf
(+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu
Austurlands
|