![]() Ungir
Vísindamenn Náttúrustofa Austurlands tekur þátt í verkefninu Ungir Vísindamenn ásamt Verkmenntaskóla Austurlands og Rannsókarstofnun fiskiðnaðarins í Neskaupstað. Ungir Vísindamenn er evrópuverkefni til þess ætlað að auka samstarf og samskipti ungra vísindamanna í Evrópu. Um er að ræða árlega samkeppni á milli nemenda á aldrinum 14-21 árs um besta vísindalega verkefnið í Evrópu. Við val á vinningsverkefnum er miðað við að verkefnið feli í sér nýjungar á svið fræða, vísinda og tækni. Fyrst er keppt meðal skóla á Íslandi og verður besta verkefnið úr þeirri keppni framlag Íslands í Evrópukeppninni sem fram fer í Dublin á Írlandi í september 2004. Fjórir nemendur taka þátt í verkefninu í Verkmenntaskóla Austurlands: Eva María Þrastardóttir, Elísa Brynjólfsdóttir, Hafþór Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson en umsjónarmaður með verkefninu er Þórður Júlíusson líffræðingur og kennari við Verkmenntaskólann
Ungir
vísindamenn: Eva María, Stefán Þór og Elísa.
|