 Burður
hreinkúa og varp heiðagæsa á Vesturöræfum 12. -14. maí 2004.
Uppfært 24/05/04
Burður hreinkúa
Heiðagæasavarp
Fjöldi eggja á hreiðri
Fuglar sem sáust í leiðangrinum
Burður hreinkúa var kannaður á Vesturöræfum dagana
12.-14. maí 2004. Flest dýrin reyndust vera innan við Sauðá en einnig voru hópar
undir hnjúkunum vestan Snæfells, á innsta hluta Syðradrags, kringum Kofaöldu og
nokkur í Hálsi. Alls sáust 270 dýr. Um 35% kúnna var borinn þann 13. maí.
Þann 30. apríl fundust 570 hreindýr á Vesturöræfum. Talið er líklegt að þau 300
dýr sem vantaði upp á talninguna í maí hafi verið komin inn undir Háöldur og
Jökulkvísl. Einnig er mögulegt að einhver dýr hafi farið yfir í Kringilsárrana.
Fjöldi borinna kúa bendir til þess að miðburður verði um miðjan maí eins og 2003
eða um 5 dögum fyrr en 1980, 1981, 1991 og 1992. Ástæða þess hlýtur að vera sú
að fengitími hafi verið fyrr á ferðinni. Ástæða þess er líklega fleiri
fullorðnir tarfar í hjörðinni en áður og líkamlegt ástand dýranna mjög gott
eftir góðan vetur og sumar.
Meðfylgjandi myndir tók Skarphéðinn G. Þórisson í leiðangrinum á Vesturöræfum.

Vetrungur í Hálsi 13. maí 2004

Kýr komin að burði í Hálsi 13. maí
2004

Kýr og um tveggja daga kálfur við Kofaöldu 13. maí 2004
Heiðagæs (Anser brachyrhynchus) virtist sums staðar
fullorpin á Vesturöræfum en meðaleggjafjöldi í hreiðri dagana 13.-14. maí var 3,5
(sjá mynd). Veisla var hjá eggjaræningjum en sex sílamáfar, einn silfurmáfur, einn
svartbakur og skúmur voru við Sauðakofa og hvít tófa í Lindum. Dagana 17.-18. maí
2003 var meðaleggjafjöldi í hreiðri á Vesturöræfum 3,7 og því virðist varpið
vera á svipuðu róli og í fyrra. Heiðagæsin hefur því byrjað að verpa í fyrstu
viku maí.
Aðstoðarmaður
í leiðangrinum var Hollendingurinn og fjallkjóasérfræðingurinn Ko de Korte.

Fjöldi eggja í hreiðri heiðagæsa á
Vesturöræfum á austurbakka Jöklu frá
Kringilsá að Sauðá 13. og 14. maí 2004

Heiðargæs á hreiðri á bakka Jöklu við Klapparlæk 13. maí 2004

Gassinn stendur á verði

Mjög lítill snjór var á Vesturöræfum um miðjan maí 2004

Hvergi snjó að sjá. Horft inn Háls frá Horni stutt utan
við Lindur 14. maí 2004
Fuglar sem sáust í leiðangrinum:
Álft
(Cygnus cygnus)
Heiðagæs (Anser brachyrhynchus)
Stokkönd (Anas platyrhynchos)
Straumönd (Histrionicus histrionicus)
Fálki (Falco rusticolus)
Sandlóa (Charadrius hiaticula)
Heiðlóa (Pluvialis apricaria)
Lóuþræll (Calidris alpina)
Spói (Numenius phaeopus)
Hrossagaukur (Gallinago gallinago)
Stelkur (Tringa totanus)
Sendlingur (Calidris maritima)
Skúmur (Catharacta skua)
Kjói (Stercorarius parasiticus)
Svartbakur (Larus marinus)
Sílamáfur (Larus fuscus)
Silfurmáfur (Larus argentatus)
Rjúpa (Lagopus mutus)
Hrafn (Corvus corax)
Skógarþröstur (Turdus iliacus)
Steindepill (Oenanthe oenanthe)
Maríuerla (Motacilla alba)
Þúfutittlingur (Anthus pratensis)
Snjótittlingur (Plectrophenax nivalis)

© Náttúrustofa Austurlands
Mýrargötu 10, 740 Neskaupstað, Sími: (+354)
477-1774, Símbréf: (+354) 477-1923
Kennitala: 461094-2529 , Netfang: na@na.is
Miðvangi 2, 700 Egilsstaðir, Sími: (+354) 471-2813, Símbréf
(+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu
Austurlands
|