 Fuglafréttir 2004
Uppfært 09/11/04
9. nóvember 2004. Silkitoppa
í Hjaltastaðaþinghá
Fimmtudaginn 4. nóvember sl. sást silkitoppa (Bombycilla garrulus)
við Rauðholt í Hjaltastaðaþinghá.
20. október 2004.
Gráhegrar og silkitoppur á Reyðarfirði
Fimmtudaginn 14. október sl. sáust sex gráhegrar (Ardea cinerea)
á Miðstrandareyri í Reyðarfirði og tveir hegrar sáust við Sléttu í Reyðarfirði
sama dag.
Þrír hegrar sáust svo á laugardag 16. október. Þá sást hópur af
silkitoppum (Bombycilla garrulus), líklega einir 10 fuglar á Reyðarfirði sl.
föstudag.
1. október 2004.
Hettusöngvari og Tyrkjadúfa á Reyðarfirði
Í síðustu viku sást tyrkjadúfa
(Streptopelia decaocto) af og til á þvælingi um Reyðarfjörð, en
tyrkjadúfur eru fremur litlar dúfur, ljósdrappar að lit. Tyrkjadúfur eru tiltölulega
sjaldséðir flækingar en alls sáust þær 21 sinni á tímabilinu 1979-2001.
Í fyrradag var svo komið með dauðan
hettusöngvara (Sylvia atricapilla) sem Dagur Kristjánsson á Reyðarfirði
fann. Hettusöngvarar eru töluvert algengir flækingar á Íslandi.
Frá árinu 1979 til ársins 2001 sáust tæplega 1500 slíkir hérlendis. Fleiri
söngvarar eru á ferð um Austurland því að í gær sáust nokkrir söngvarar í Einarslundi við Hornafjörð.
13. ágúst 2004.
Rauðbrystingar við flugvallarendann í Neskaupstað
Í síðustu viku sást til fimm rauðbrystinga (Calidris canutus) við
austurenda flugvallarins í Norðfirði, einn fullorðinn fugl með rauða bringu og
fjórir ungar.
25. ágúst 2004.
Gráhegrar á Norðfirði
Undanfarna daga hafa tveir gráhegrar (Ardea cinerea) sést á
þvælingi við Norðfjarðarflugvöll, síðast nú í morgun í kílnum svokallaða við
enda flugbrautarinnar.
20. ágúst 2004. Brandugla
á Norðfirði
Í fyrradag kom Jóhann Zoëga auga á uglu, líklegast branduglu (Asio
flammeus) sem sveimaði nokkra stund yfir honum í kvöldhúminu þar sem hann var á
göngu út með Norðfjarðará að sunnanverðu.
22. júlí 2004.
Mandarínendur á Vopnafirði
Fyrr í sumar dvöldu þrjár mandarínendur (Aix
galericulata) á Vopnafirði, tveir steggir og ein kolla. Annar steggurinn mun
hafa látist af slysförum.
19. júlí 2004.
Hópur jaðrakana á Bragðavöllum
Um helgina sást hópur jaðrakana (Limosa limosa),
alls um 26 fuglar, spóka sig á túninu á Bragðavöllum í Hamarsfirði. En undanfarna
áratugi hefur stofn íslenskra jaðrakana stækkað mikið og að sama skapi hafa þeir
breiðst út um landið. Samkvæmt upplýsingum úr nýjasta hefti Blika verptu
jaðrakanar einugis á undirlendi Suðurlands fyrir rúmri öld en nú verpa þeir á
láglendissvæðum víða um landið (Tómas Grétar Gunnarsson og Böðvar Þórisson
2004).
8.
júlí 2004. Tveir hafernir við Húsey
Tveir hafernir (Haliaeetus albicilla) sáust við Húsey við
Héraðsflóa í gær.
29. júní 2004.
Fjallafinka í Neskaupstað
Torkennilegur
fuglasöngur hefur ómað í skógræktinni í Neskaupstað og á Hlíðargötu
undanfarið og í morgun sást fjallafinka (Fringilla montifringilla) á
Hlíðargötu.
28. júní 2004.
Haförn í Fáskrúðsfirði
Frosti
Magnússon Höfðahúsum við Fáskrúðsfjörð og Þorsteinn Björnsson frá Þernunesi
sáu ungan haförn (Haliaeetus albicilla) við Staðarskarð í Fáskrúðsfirði
þann 11. júní sl. Gátu þeir virt fuglinn vel fyrir sér er hann hnitaði hringi yfir
höfði þeirra. Frosti sá einnig haförn sem var við Reyðarfjörð fyrir tveimur
árum.
4. júní 2004. Landsvölur
á ferð um Norðfjörð
Undanfarna daga hafa nokkrar landsvölur (Hirundo
rustica) sést á ferð í Neskaupstað. Mest hafa þær sést þrjá saman á
flugi og í gærkvöldi sátu tvær svölur á þakskeggið á húsi einu við Urðarteig
og fylgdust grannt með húsfreyjunni slá.
18. maí 2004. Þrastarungar í
Miðhúsum og þrastarhreiður í blómapotti á Eskifirði
Í gær voru tveir skógarþrastarungar skriðnir
úr eggjum í hreiðri á Miðhúsum. Á Eskifirði hefur skógarþröstur (Turdus
iliacus) verpt í blómakörfu í Svínaskálahlíð annað árið í röð en þar
eru ekki komnir ungar.

Dóri Friðriks stendur við þrastarhreiðrið í
Svínaskálahlíð á Eskifirði
Ljósm: Helgi Garðarsson
14. maí 2004. Brandendur á
Eskifirði
Brandendur(Tadorna tadorna) hafa
verið að þvælast á Eskifirði undanfarna daga. Þær sáust fyrst 10
maí og hafa síðan sést af og til. Teikningu af brandönd má sjá hér á vef Jóns
Baldurs Hlíðberg.

Brandendur á Eskifirði
Ljósm: Helgi Garðarsson
13. maí 2004. Ungur
hvítmáfur á Eskifirði
Í morgun sást ungur hvítmáfur (Larus hyperboreus)
á Eskifirði. Hann er alhvítur á lit, með bleika fætur og bleikan
gogg. Að sögn kunnugra er hér um ungfugla á fyrsta sumri að ræða en þeir
eiga það til að verða alhvítir þegar líður á vor. Helgi Garðarsson ljósmyndari á
Eskifirði náði mynd af hvítmáfnum.
Hvítmáfurinn ungi á Eskifirði
Ljósm: Helgi Garðarsson
13.
maí 2004. Bæjarsvölur, jaðrakanar og blikönd á Norðfirði
Í síðustu viku voru bæjarsvölur (Delichon
urbica) að guða á glugga í Neskaupstað. Þá sást hópur jaðrakana (Limosa
limosa) á flugi, en þeir eru að verða æ algengari niðri á
fjörðum. Einnig telja menn sig hafa séð blikönd (Polysticta stelleri)
á sundi innan um hávellur við ós Norðfjarðarár. Hægt er að skoða mynd af
blikönd á vef Álfasteins á Borgafirði eystra hér
03. maí 2004. Margæsir á Seyðisfirði.
Í síðustu viku sáust nokkrar margæsir á
Seyðisfirði og voru þær flestar fimmtán saman.
26.
apríl 2004. Glókollur farin að verpa við Miðhús og tvohundruð selir á sundi
við Héraðssand.
Um miðjan apríl sá Edda á
Miðhúsum fyrsta skúminn við Grænamó og líka sex lóma. Þá voru allt
að tvohundruð selir á sundi í fljótinu rétt við ósinn þar sem Jökulsá og
Lagarfljót renna saman til sjávar og sex mjög þreyttir sendlingar kúrðu þreyttir á
eyðinu við ósinn.
Þá
hefur glókollurinn glatt íbúa við Miðhús með söngaríum síðan í byrjun apríl
og er getum leitt að því að hann og auðnutittlingarnir í nágrenni Miðhúsa sé
farinn að verpa. Þann 19. apríl sáust svo 40 - 50 rauðhöfðaendur í
hóp á Vífilsstaðanesin og sl. föstudag var máríerlan mætt til að athuga með sinn
gamla bústað á Miðhúsum.
24.
apríl 2004. Kríur og spóar flykkjast til landsins
Fyrstu kríur
ársins, svo vitað sé, sáust um miðjan dag sl. föstudag þegar fjórar sáust á
flugi yfir leirunni sunnan við flugvöllinn í Neskaupstað. Stuttu síðar bárust
fregnir af kríum við Ósland í Hornafirði þann sama dag og síðan þá hefur bætt
í fjöldann víðs vegar um land. Spóarnir eru líka mættir á svæðið, þeir
fyrstu í Neskaupstað sáust á laugardaginn.
21.
apríl 2004. Æðarkóngur í höfninni í Neskaupstað
Sl. mánudag voru nemendur Menntaskólans á Egilsstöðum á ferð í Neskaupstað
til að skoða fugla og heimasækja Náttúrugripasafnið. Innan um allan
æðarfuglinn í höfninni í Neskaupstað komu þeir ásamt kennara sínum auga á
æðarkóng.
16.
apríl 2004. Hringdúfa spókar sig á túninu á Unaósi
Fyrir helgu sáu Þorsteinn og Soffía á Unaósi eina fullorðna hringdúfu spóka
sig á túninu hjá sér.
2.
apríl 2004. Húsönd og hvinönd á Héraði, æðarkóngur á Seyðisfirði,
helsingjar og brandendur á Norðfirði
Fuglafréttir eru loks komnar úr löngu páskafríi. Rétt er að rifja upp nokkrar
fuglafréttir úr fjórðungnum.
Þann
31. mars sl. sá Halldór Walter Stefánsson 70-80 rauðhöfða lenda á Lagarfljóti
innan brúar milli Egilsstaða og Fellabæjar. Aðrir fuglar sem sáust á
Héraði um svipað leiti voru t.d. húsandarpar á Lagarfjóti, hvinönd, amk.
karlfugl og líklega kvenfugl. Þá heyrðist og sást til lóma á Fljótinu. Grágæsir
sáust fyrst á Héraði 29. mars, m.a. í skógræktinni, á Egilsstaðanesi og í
Hjaltastaðaþinghá.
Á
Seyðisfirði fréttist fyrst af tjöldum 12. mars og einn æðarkóngur sást við
bræðslubryggjuna 15. mars í stórum hópi æðarfulga (á að giska 5000 fuglar).
Frá í mars hefur verið þó nokkuð af hávellu í firðinum og toppandarpar
hefur haldið sig í höfninni á Seyðisfirði í allna vetur. Þá hafa þrír
svartþrestir verið í fæði í allan vetur á Seyðisfirði.
Um
miðjan apríl settist stór hópur helsingja á túnin í Norðfirði en þeir stoppuðu
stutt við. Þá sást brandandarpar á Leirunni við flugvöllin fyrri hluta
apríl, eins og mörg undanfarin vor.
1.
apríl 2004. Gæsir, rauðhöfðaendur og þrestir á Norðfirði.
Í gær sást til nokkurra gæsa á túnum neðan við Miðbæ og Rauðhöfðaendur sáust
á Leirunni norðan við flugvöllinn. Í morgun voru svo þrestir farnir að syngja
fyrir bæjarbúa.
30.
mars 2004. Húsönd á Norðfirði
Húsönd
hefur verið að þvælast neðarlega á leirunni í Neskaupstað síðan um helgi og
heldur hún sig einkum rétt ofan og neðan við brúna yfir að flugvallarskýlinu.
Húsendur eru sjaldséðar í Neskaupstað.
11.
mars 2004. Tjaldarnir á Norðfirði
Brynjar
Júlíusson og Fríður Björnsdóttir sáu í morgun tvo tjalda sem eru þeir fyrstu sem
sjást í Norðfirði á þessu ári, um viku fyrr en í fyrra segja fuglaáhugamenn.
Fuglarnir sáust neðan við gamla íbúarhús Gylfa Gunnarssonar, rétt utan við gamla
frystihúsið.
28.
febrúar 2004. Álftir á Norðfirði
Fuglaáhugamenn í Norðfirði kættust mjög í morgun þegar þrjár álftir sáust
á þvælingi um Norðfjarðarsveit. Þessar álftir eru óvenjusnemma á ferð, en
vanalega er langt liðið á mars þegar þær fara að sjást í Norðfirði.

© Náttúrustofa Austurlands
Mýrargötu 10, 740 Neskaupstað, Sími: (+354)
477-1774, Símbréf: (+354) 477-1923
Kennitala: 461094-2529 , Netfang: na@na.is
Miðvangi 2, 700 Egilsstaðir, Sími: (+354) 471-2813, Símbréf
(+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu
Austurlands
|