logomynd-litil.jpg (12401 bytes)

Kýr fellir horn fyrir burð
Uppfært 09/06/04

Náttúrustofunni barst þann 3. júní eftirfarandi fyrirspurn frá Unni Sigurþórsdóttur, deildarstjóra fræðsludeildar Fjölskyldu- og húsdýragarðsins:
Við í Húsdýragarðinum rákum upp stór augu hér um daginn þegar hreindýrskýrin Kólga bar kálfi.  Slíkt hefur nú margoft gerst í garðinum en núna hafði Kólga misst hornin fyrir margt löngu síðan og við því töldum að hún væri geld.  Auðvitað hljóta að vera til undantekningar en er þetta algengt í náttúrunni að kýr beri eftir hornmissi? Við viljum hafa allt klárt þegar við fræðum börnin og beinum þessari fyrirspurn því til þín.

Svar Náttúrustofu Austurlands:
Hornafellir stjórnast af hormónum. Fullorðnir tarfar fella hornin fyrir jól en ef þeir eru geltir þá fella þeir á sama tíma og geldar kýr þ.e. í apríl. Hornavöxtur og hornafelli dregur að einhverju leyti dám af ástandi haganna. Þar sem beit er légleg getur hægt á hornavexti og hornafelli seinkað. Eins þar sem dýrin hafa það mjög gott getur það virkað á hinn veginn. Í bókinni Reindriften og dens naturgrunnlag eftir Skjenneberg og Slagsvold (1968) segir: "Er beitene gode, kan vi se at de fleste simlene har felt horna allerede för kalvetiden"

Vorið 2002 var hlutfall hyrndra kúa í Snæfellshjörðinni 90%, 85% 2003 og 81% nú í vor. Líklegt er að skýingin á þessari fækkun hyndra kúa fyrir burð sé betra líkamlegt ástand þeirra eins og hjá þinni kú.

Sjá frétt um Kólgu og kálf hennar á vef Fjölskyldu-og húsdýragarðsins.

Sjá líka eldri frétt um frjósemi og burð hreinkúa á Vesturöræfum.

kyrogkalfur.jpg (20336 bytes)
Hreinkýr með kálf.
Ljósm. Skarphéðinn G. Þórisson

 

 adalsida-litil.gif (769 bytes)


© Náttúrustofa Austurlands   
Mýrargötu 10,   740 Neskaupstað,  Sími: (+354) 477-1774,  Símbréf: (+354) 477-1923 
Kennitala: 461094-2529 , Netfang:
na@na.is
Miðvangi 2,   700 Egilsstaðir,   Sími: (+354) 471-2813, Símbréf (+354) 471-2172
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu Austurlands