![]() Breyting
á mörkum hreindýraveiðisvæða Svæði nr. 5 sem áður var Norðfjörður, Gerpissvæðið og hluti Eskifjarðar hefur verið stækkað og nær nú yfir alla Fjarðabyggð. Að sama skapi hefur svæði nr. 4 minnkað um sem nemur því svæði sem tilheyrir Fjarðabyggð. Ástæða breytinganna er tvíþætt: annars vegar að gera Fjarðabyggð alla að sama veiðisvæði og hins vega að einfalda stjórn á veiðum úr svokallaðri Eskifjarðarhjörð sem flakkar á milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar.
|