![]() Silfurbrami,
litli bramafiskur og hornfiskur Í nóvember síðastliðnum bárust Náttúrustofunni tveir fiskar af Berki NK sem reyndust vera nokkuð sjaldgæfir við Ísland. Þetta eru silfurbrami (Pterycombus brama- sjá mynd) og litli bramafiskur (Taractes asper-sjá mynd) og eru þeir af bramaætt. Litli bramafiskur er mjög sjaldgæfur hér við Íslandstrendur og einu heimildirnar um hann hér eru frá árinu 1870 en þá fannst hann rekinn í fjörur í Vestmannaeyjum eftir SA-stórviðri og einn fiskur veiddist á fjórða áratugi síðustu aldar af þýskum togara á Íslandsmiðum. Silfurbrami veiðist öðru hvoru við Íslandstrendur. Báðir fiskarnir veiddust sunnarlega í Rósagarðinum á 150 faðma dýpi. Þeir voru sendir til Hafrannsóknastofnunar til frekari athugunar og er verið að teikna mynd af litla bramafisknum þar. Heimkynni
Silfurbramans er í Norðusjónum og í hlýrri hlutum Atlantshafsins. Litli bramafiskur
finnst aðallega í Atlantshafi, Indlandshafi og Kyrrahafi. Í NA-Atlantshafi finnst hann
frá Madeira norður til Noregs. Í desember barst okkur síðan Hornfiskur (Belone belone belone - sjá mynd) hann veiddist á Beiti NK. Þessir fiskar lifa í NA-Atlantshafi frá stöndum Frakklands og Englands, um Norðursjó og inn í Eystrasalt. Þeir eru sjaldgæfir flækingar hér við Íslandstrendur og hafa ekki mörg eintök borist hingað svo vitað sé. Nánari fróðleik um hornfisk má finna á http://www.bohusfisk.se/horngadda.html
|