
Fjöruferð fjölskyldunnar
Uppfært 11/05/05
Laugardaginn 14. maí mun Náttúrustofan standa fyrir
fjöruferð fjölskyldunnar við Útstekk. Lífríki fjörunnar verður kannað og sagðar
verða sögur. Fransmaður á lóuveiðum, Gullskipið í hólnum, Magnús sterki og
ljónið, verslunarstaður við Útstekk, hvaða skeljar finnast í fjörunni? Mæting
við Útstekk í norðanverðum Reyðarfirði klukkan 11:00. Klukkan 21:00
um kvöldið verður síðan varðeldur á Mjóeyrinni.