
Ákveðið var að skreppa í
Sandvík til að athuga hve mörg hreindýr væru þar
á burðartíma í ár og til að skoða framvindu burðar. Með í ferðinni voru
Berglind Steina Ingvarsdóttir, Sævar Guðjónsson, Ingvar Isfeld Kristinsson
og Rán Þórarinsdóttir.
Ingvar gekk frá Oddsdal í
Norðfirði um Hellisfjörð niður í Viðfjörð.
Hellisfjörður var því líka skannaður. Þar sáust engar kýr en 8 tarfar.
Frá Viðfirði var lagt af stað að kvöldi 29. maí og gengið um Kerlingaskarð
yfir í Sandvík. Á leið niður í skála var kíkt eftir dýrum. Sáum við um 30
dýr, aðalega kýr með kálfa dreifð frá Landsenda að tóftum rétt innan við
skálann. Eina nýborna kú rákumst við einnig á á leiðinni niður hlíðarnar.
Kálfurinn reyndist
vera kvíga, eflaust ekki meira en nokkurra klst gömul. Var hún merkt hið
snarasta og reikar nú um hlíðar Sandvíkur með bláa 11 í hægra eyra.
Daginn eftir var
farið skipulega í að telja Sandvíkina og var eitt fyrsta
dýrið sem við komum auga á þegar gengið var úr skála að morgni, ungi merkisberinn
frá deginum áður. Hann var núna komin, ásamt móður sinni, í hóp með fleiri kúm
og kálfum.
Gengið var frá
skálanum út í Landsenda og þaðan inn Kjöl, um Kjölskarð yfir í Súlnadal og
niður í Viðfjörð. Sést á þessari leið nokkuð vel yfir alla Sandvíkina og
mestan hluta Viðfjarðar.
Í heildina sáum við 56 kýr og 49 kálfa. Töluvert var af ungdýrum 1-2 vetra
eða um 22.
Sextán dýr að auki gátu hafa verið ung geld dýr eða kýr með
kálfa í hvarfi. Allt í allt sáust því 93 fullorðin eða ung dýr og þar af
voru allavega 48 bornar kýr.
Merktir voru tveir
kálfar til viðbótar; kvíga með bláa fimmu í vinstra eyra og
tarfkálfur með bláa áttu í vinstra og svart merki í hægra eyra. Þessir
kálfar
voru ekki nema svona um tveggja-þriggja sólahringa gamlir. Af kúnum voru
þrjár hyrndar og stakar. Þær hafa verið nýbornar eða að bera. Burður
hefur því ekki verið alveg búinn en væntanlega að klárast.
Talningin tókst vel, skyggni og veður eins og best verður kosið og kýrnar á sínum
stað í góðum holdum og kálfar sprækir.

Ljósm
Rán
Þórarinsdóttir

Ljósm
Rán
Þórarinsdóttir

Ljósm
Rán
Þórarinsdóttir

Ljósm
Rán
Þórarinsdóttir

Ljósm
Rán
Þórarinsdóttir

Ljósm
Rán
Þórarinsdóttir
© Náttúrustofa Austurlands
Mýrargötu 10, 740 Neskaupstað, Sími: 477-1774,
Símbréf: 477-1923, Netfang: na@na.is
Miðvangi 2, 700 Egilsstaðir, Sími: 471-2813
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu
Austurlands