 Fuglafréttir
2006
Uppfært 04/11/06
03.10.
2006 Gransöngvararnir gleðja
Tíu til fimmtán gransöngvarar (Phylloscopus collybita) hafa
glatt bæjarbúa í Neskaupstað í vikunni þar sem þeir hafa verið iðnir við
að hreinsa grenilús af trjám, m.a. á Mýrargötunni. Einnig hefur sést til
hettusöngvara (Sylvia atricapilla), svartþrasta (Turdus
merula) og auðnutittlinga (Carduelis flammea).
Af hverju heitir auðnutittlingur auðnutittlingur? Lesið svarið á Vísindavef Háskóla
Íslands. Frekari fróðleik um auðnutittling má lesa hér
og skemmtilegar myndir má sjá hér.
Skemmtilegar íslenskar myndir af svartþresti má sjá hér og
af gransöngvurum á Íslandi má skoða hér.
26.10.
2006 Hettusöngvari í miðbæ Neskaupstaðar
Hettusöngvari (Sylvia atricapilla) sást í morgun í garði
í miðbæ Neskaupstaðar. Hér má
sjá nokkrar íslenskar myndir af hettusöngvurum og hér
má lesa örlítinn fróðleik um hettusöngvara.
01.06.2006 Bæjasvala
Bæjasvala sást út á bökkum (Marbakka) á Norðfirði þann 30.05
08.05.2006 Kanadagæsir
Tvær kanadagæsir sáust á Norðfirði um helgina og svo aftur í morgun
08.05.2006 Fuglapistill
frá Eddu á Miðhúsum
Í gær fór ég í gönguferð út í Héraðssand, fór að vísu ekki út á
sjálfan sandinn vegna mikils vatns á flæðunumm en kost út undir Torfur meðfram
Lagarfljótinu. Þar sá ég fyrsta spóaparið í ár. Þá var steindipilinn
mættur í fjárhúsið á Grænmó, en ekki vottaði fyrir fálkasetri þar í ár
en í fyrra var þar setur á þessum tíma. Lítið var um kjóa og engan skúm sá
ég og ekki eina einustu kríu. Fór síðan upp að Matseljutjörn á Hjaltastað
og þar sá ég fyrstu kríurnar tvær saman sem görguðu af hjartans list. Sex
flórgoðar voru mættir á tjörnina og nokkrar duggegndur. Flórgoðarnir voru
með ýmis tilþrif á vatninu.
Á sunnudag fór ég suður á Hornafjörð
og á túninu á Starmýri sá ég hóp af heiðargæsum þar sem ljós gæs var með í
för. Í hópnum var líka einn helsingi.
Í trjálundinum við Brekku í Lóni sá
ég 6 landsvölur sem léku listir sínar. Út við Gónhól á Höfn var allt fullt
af þreyttum kríum.
04.05.2006
Lundinn kominn í Skrúð
Lundinn sást í Skrúð 26. apríl síðastliðinn
það var Páll Leifsson sem sá hann og tilkinnti.
26.04.2006
Gulendur á Norðfirði
Sex gulendur sáust, þrjú pör, sáust á leirunni
norðan við flugvöllinn í Neskaupstað á mánudaginn 24. apríl.
26.04.2006
Af farfuglum á Vattarnesi og lóum á Mjóeyri
Páll Leifsson á Eskifirði hefur fylgst með
fuglalífi á Vattarnesi undanfarið.
Föstudaginn 21. apríl taldi hann eftirfarandi fugla þar:
16 Heiðagæsir á túninu við Vattarnes
190 helsingjar
28 grágæsir
2 landsvölur
1 maríuerla í Vattarnesskriðum
22 hrossagaukar
27 heiðlóur
150 skógarþrestir, flestir í fjörunni
39 tildrur og 110 sendlingar í fjörunni
250 fýlar og 20 sílamáfar í klettum ofan við Vattarnes
2 svartbakar
1 himbrimi
21 hávella
170 æður
Undir myrkur fóru stórir hópar af Helsingja og heiðagæs suður með landi í átt að
Skrúð og Andey. 1 hópur fór inn í Fáskrúðsfjörð
Þá flugu sex hópar, um það bil 1800 fuglar, af helsingja inn í
Reyðarfjörðinn á milli hálffimm og sjö um kvöldið.
Einnig töluvert af heiðagæs eða um 300 fuglar í 2 hópum
Mánudaginn 24. apríl komu 24 jaðrakanar fljúgandi og settust á túnið á Vattarnesi.
Þriðjudaginn
25. apríl voru 30 urtendur í fjörunni á Vattanesi og 23 margæsir sem síðan fóru
inn á Reyðarfjörð.
Húsráðendur
á Mjóeyri heyrðu fyrst í lóunni á sumardaginn fyrsta og sáu hana daginn eftir á
vappi á eyrinni.
09.03.2006
Tjaldurinn mættur í kaffi á Olís
Tjaldurinn er mættur á Norðfjörð, en hann sást við söluskála
Olís snemma í morgun að því er virðist til að taka þátt í kaffispjallinu.
Í gær sáust stelkar og má lesa um það á fulgasíðunni www.fugl.is , í frétt frá í gær, 8. mars 2006.

© Náttúrustofa Austurlands
Mýrargötu 10, 740 Neskaupstað, Sími: (+354)
477-1774, Símbréf: (+354) 477-1923, Kennitala: 461094-2529
Netfang: na@na.is
Miðvangi 2, 700 Egilsstaðir, Sími: (+354) 471-2813
Bannað er að afrita myndir af vef þessum nema með skriflegu leyfi frá Náttúrustofu
Austurlands
|