Árlegt Náttúrustofuþing var haldið í sjöunda sinn í Egilsbúð í Neskaupstað miðvikudaginn 26. október síðastliðinn. Þingið var vel heppnað og aðsókn góð. Alls mættu um 70 manns til að hlýða á fjölbreytt erindi starfsmanna náttúrustofa og gestafyrirlesara. Í kjölfar málþingsins fundaði starfsfólk náttúrustofa um sameiginleg málefni stofanna. Útdrætti úr erindum á Náttúrustofuþinginu má nálgast hér
Náttúrustofuþing verður haldið í Neskaupstað miðvikudaginn 26. október næstkomandi. Þar gefst gestum tækifæri til að hlýða á fjölbreytt erindi starfsmanna náttúrustofa og gestafyrirlesara. Náttúrustofur eru sjö talsins, dreifðar vítt og breitt um landið. Þær mynda með sér Samtök náttúrustofa, sem er samstarfs- og samráðsvettvangur þeirra. Frá árinu 2005 hafa náttúrustofurnar skipst á að halda ráðstefnu haust hvert í tengslum við aðalfund samtakanna. Að þessu sinni er gestgjafinn Náttúrustofa Austurlands. Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast hér
Í hreindýraflugi þann 1. júlí 2011 sáust all margir og misstórir hringir á Vallanesi. Sú kenning var fram sett af undirrituðum og Jóni Inga Sigurbjörnssyni að þarna væru lendingarummerki fljúgandi furðuhluta. Þann 15. september voru hringirnir skoðaðir með Eymundi í Vallanesi og Helga Hallgrímssyni. Niðurstaða var að hér væru um sveppabaugi að ræða af völdum skurðspyrðu (Lyophyllim multiformis) skv greiningu Helga en þeirra væri helst að vænta og oft í stórum breiðum á skurðruðningum. Hringirnir sem við skoðuðum voru um 15 og 30 metrar í þvermál. Þeir sem vilja vita meira um sveppabauga er bent á Sveppabók Helga Hallgrímssonar
Eins og undanfarin ár fóru nemar í líffræði og jarðfræði við Verkmenntaskóla Austurlands í vettvangsferð á Mývatn, ýmist að læra um jarðfræði svæðisins eða lífríki. Það voru raungreinakennararnir Einar Þórarinsson, Gunnar Ólafsson og Þórður Júlíusson sem fóru með nemendum í þessa ferð. Þegar heim er komið vinna nemendur úr gögnum sem safnað var í ferðinni. Hluti hópsins kom hingað á Náttúrustofuna til að fá aðstoð við að greina lífverur úr sýnum sem tekin voru úr Laxá og Mývatni.
Samkvæmt upplýsingum á vefnum hreindyr.is náðist að veiða allan útgefinn hreindýrakvóta ársins en veiðitímabilinu lauk í gær. Útgefin voru 1001 leyfi til að veiða 421 hreintarf og 580 hreinkýr. Tarfaveiðinni lauk 15 september en veiða má kýr fimm dögum lengur. Aðstæður á veiðitímabilinu voru oft erfiðar enda veðurfar ekki eins og best verður á kostið til á austurlandi, mikið um þoku og lélegt skyggni. Engu að síður gekk veiðin vonum framar og var síðasta hreinkúin felld um kl 20 í gærkvöld. Nánari upplýsingar um veiðarnar má finna áwww.hreindyr.is