Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsóttu Náttúrustofuna mánudaginn 21. október á ferð sinni um Fjarðabyggð. Forsetinn kynnti sér starfsemi Náttúrustofunnar, fólkvanginn í Hólmanesi og Náttúrugripasafnið í Neskaupstað.
Í tilefni af 40 ára afmæli fólkvangsins/friðlandsins á Hólmanesi stóð Fjarðabyggð fyrir göngu um svæðið laugardaginn 5. október. Náttúrustofa Austurlands sá um leiðsögn og fræðslu. Fámennt var en góðmennt í fögru veðri. Að leiðarlokum bauð Fjarðarbyggð upp á sjokkelaðe og piparkökur. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir teknar í göngunni.
Hreindýr eru nú í byrjun október 2013 a.m.k. á þremur stöðum nálægt vegum. Á Mýrunum eru á annað hundrað dýr og halda sig mikið nálægt Flatey. Lítið hefur borið á hreindýrum í á Jökuldalsheiði undanfarið og líklegt að þau séu norður í Vopnafirði en þó má búast við að hópar birtist á næstunni á Langadal, við Vopnafjarðarveg og Háreksstaðaleið. Á Fagradalnumvoru 146 hreindýr við veginn þann 4. október og líklegt að þau verði þar í nágrenninu a.m.k. næstu vikurnar. Eins og fyrr geta menn búist við hreindýrum nærri flestum vegum á Austurlandi þó hættan sé einna mest á ofangreindum stöðum.
Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá því að Hólmanes var friðlýst sem fólkvangur og friðland býður Náttúrustofa Austurlands og Fjarðabyggð upp á fjölskyldugöngu um svæðið laugardaginn 5. október.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum heimsótti rostungur Borgfirðinga þann 26. september 2013. Spurningar vöknuðu hvort þetta gæti verið sá sami og sást við Skálanes í Seyðisfirði eða rostungurinn á Reyðarfirði sem sást síðan við Jökulsárlónið. Þegar myndir eru bornar saman sést greinilega að hér er þriðji einstaklingurinn á ferð. Þetta var afar spakur brimill samkvæmt Skúla Sveinssyni sem heilsaði upp á hann á Hofstrandarfjöru.