Náttúrustofunni barst eftirfarandi tölvupóstur frá Sigurði Ragnarssyni á Akurnesi í Nesjum 18. apríl 2013:
“Mér datt því í hug að senda þér myndir af hreindýri sem ég rakst á á Tindi Ketillaugarfjalls í um 600 m hæð, um klukkan 20:00 í gær. Þetta er mjög sérstakt og ég hef aldrei rekist á neitt dýr á þessum tindi nema fugla (og alls ekki í apríl). Hreindýrið stendur á eystri hluta tindsins, sem er klofinn frá þeim vestari með klettaskorum. Töluvert klettaklöngur er að komast upp á eystri tindinn og spurning hvort að dýrið hafi lent þarna upp þegar fannir voru yfir mestu klettahöftunum, og síðan ekki komist til baka. En mér finnst líklegt að það sé í hálfgerðri sjálfheldu þarna. Þegar dýrið varð vart við mig fór það í skjól sunnan í tindinn og stóð þar ofan við klettana eins og sést á myndunum”