Blikakolla á Norðfirði

Read moreÍ lok maí síðastliðinn tilkynnti Þorgeir V. Þórarinsson æðarbóndi á Norðfirði um  einkennilega útlitandi æðarfugl í landi Borga á Norðfirði.  Fuglinn lá á eggjum og var  hinn spakasti.  Jón Ágúst Jónsson frá Náttúrustofu Austurlands fór og skoðaði fuglinn ásamt Þorgeiri og tók meðfylgjandi myndir. 
Myndirnar voru bornar undir ýmsa fuglasérfræðinga bæði hjá stofunni og víðar og þótti fuglinn athyglisverður fyrir þær sakir að hann bar úlitseinkenni bæði kollu og blika. 
Lesa meira...
 

1.bekkur Nesskóla færir Náttúrugripasafninu í Neskaupstað 2 laupa að gjöf

Read moreÞann 28.maí gáfu 1.bekkingar Nesskóla Náttúrugripasafninu 2 laupa (hrafnshreiður) sem þau höfðu unnið að í vetur. Krakkarnir söfnuðu greinum, ull og alls kyns glitrandi dóti og útbjuggu laupa úr því. Eins og flestir vita eru hrafnar bæði hrekkjóttir og þjófóttir og er samsetning hreiðursins háð því hvaða efni hann finnur í grennd við hreiðurstæðið.

Lesa meira...
 
Fleiri greinar...

Hreindýr á vegum

Póstlisti