Dagur hinna viltu blóma

thumb_blaklukkaDagur hinna viltu blóma verður næstkomandi sunnudag 15.júní. Þann dag gefst fólki víðsvegar um land kost á að fara í uþb tveggja tíma gönguferð um nágrenni sitt án endurgjalds og fá um leið leiðsögn um algengustu plöntur sem þar vaxa.
Ekki þarf að tilkynna þáttöku, heldur mæta á auglýstum stað á réttum tíma.
Starfsmenn frá Náttúrustofu Austurlands verða til taks á Egilsstöðum í Neskaupstað og á Fáskrúðsfirði.
Mæting
í Neskaupstað á bílaplaninu úti í Fólkvangi hjá vitanum kl 10. Á Egilsstöðum er mæting á bílastæðinu við Selskóg kl 10 og í Hjaltastaðaþinghá, Fljótsdalshérað. Mæting á Unaósi kl 14. 
Á Fáskrúðsfirði er mæting á tjaldstæðinu kl 19.
Nánari upplýsingar um Dag hinna viltu blóma má sjá hér

 

Blikakolla á Norðfirði

Read moreÍ lok maí síðastliðinn tilkynnti Þorgeir V. Þórarinsson æðarbóndi á Norðfirði um  einkennilega útlitandi æðarfugl í landi Borga á Norðfirði.  Fuglinn lá á eggjum og var  hinn spakasti.  Jón Ágúst Jónsson frá Náttúrustofu Austurlands fór og skoðaði fuglinn ásamt Þorgeiri og tók meðfylgjandi myndir. 
Myndirnar voru bornar undir ýmsa fuglasérfræðinga bæði hjá stofunni og víðar og þótti fuglinn athyglisverður fyrir þær sakir að hann bar úlitseinkenni bæði kollu og blika. 
Lesa meira...
 
Fleiri greinar...

Hreindýr á vegum

Póstlisti