Aðmírálsfiðrildi í Fellabæ

thumb_img_0596_vefÞann 6. júlí sást meðfylgjandi aðmírálsfiðrildi  (Vanessa atalanta) í Fjóluhvammi í Fellabæ og fyrr um daginn hafði annað sést í öðrum garði í bænum. Þegar netið er gúglað sést að fyrsta aðmírálsfiðrildið í ár sást 9. maí á Selfossi. Síðan þá hafa þau sést vítt og breitt um landið. Fiðrildi sáust á Egilsstöðum þann 16. júní og á Seyðisfirði þann 20. Upplýsingar um tegundina má finna á Vísindavefnum;
http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=2131

Allar upplýsingar um stór og litskrúðug fiðrildi sem sjást á Austurlandi eru vel þegnar og fólk beðið um að tilkynna það til Náttúrustofu.

 

thumb_img_0590_vef

 thumb_img_0589_vef

 

 

 

 

Þess má einnig geta að Edda á Miðhúsum  sendi okkur tölvupóst en hún sá fiðrildið á myndinni hér að neðan flögra um hlaðið á Miðhúsum á Fljótsdalshéraði síðastliðinn laugardag.   Netfangið okkar er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
thumb_copy (2) of skogardagurkarahnjukar aettamot 023

Síðast uppfært ( Mánudagur, 07 Júlí 2008 11:08 )