Náttúrugripasafnið í Neskaupstað.
Náttúrustofa Austurlands annast viðhald safngripa og móttöku gesta utan hefðbundins opnunartíma á Náttúrugripasafninu fyrir Fjarðabyggð. Safnið er til húsa að Egilsbraut 2, ásamt Sjóminja- og smiðjumunasafni Jósafats Hinrikssonar og Myndlistarsafni Tryggva Ólafssonar. Þar má sjá fjölskrúðugt safn dýra, plantna og steina í skemmtilegri uppsetningu listakonunnar og leikmyndahönnuðarins Unnar Sveinsdóttur. Gestamóttaka hefur undanfarin ár verið í höndum Félags eldri borgara í Neskaupstað. Safnið er opið daglega á tímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst kl. 13:00 – 17:00, en utan þess tíma eftir samkomulagi. Sími: 4771774,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða sími: 470 9063,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Vefsíðu safnsins má finna hér
