Hreindýr á Fljótsdalsheiði

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hreindýr á FljótsdalsheiðiHreindýr voru heimsótt á Fljótsdalsheiði 21. nóvember. Um 130 dýra hópur var við Teigsbjargsveg. Þar í voru 16 fullorðnir tarfar sem telst nokkuð hátt hlutfall. Um 70 kálfar voru á hverjar 100 kýr sem er líka hátt en skýringinn eru veiðarnar í haust.

 

 

 

 

 

21.nóvember 2009Tarfarnir voru sumir afar þreytulegir að sjá en aðrir höfðu enn orku til að stangast á og helst þeir ungu. Einn fullorðinn tarfur var búinn að fella annað hornið. Senditækjakusan Gríma var í hópnum og eru ferðir hennar sýndar á meðfylgjandi korti. Annar stór hópur lá síðan á ísilögðu vatni stutt utan vegar norðan Svartöldu.

 

 

Hreindýr á Fljótsdalsheiði Hreindýr á Fljótsdalsheiði Hreindýr á Fljótsdalsheiði

Hreindýr á Fljótsdalsheiði Hreindýr á Fljótsdalsheiði Hreindýr á Fljótsdalsheiði

 

 

Hreindýr á Fljótsdalsheiði Hreindýr á Fljótsdalsheiði Hreindýr á Fljótsdalsheiði

Á Fljótsdslsheiði

 

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 24 Nóvember 2009 11:33 )