Tvær kýr með senditæki og tarfur með eyrnamerki í Jökuldalsheiði

17 jan 2010Þann 8. janúar var hengt senditæki á kú við Hlíðarenda og þann 10. á aðra við Ánavatn. Voru þær skírðar út frá því. Kýrnar voru heimsóttar þann 17. janúar, Hlíðarenda var við Vopnafjarðarveg í 84 dýra hópi og Ána í Arnórsstaðamúlanum í 276 dýra hópi.

HreindýrNokkrum dögum áður hafði Páll og Gréta á Hákonarstöðum myndað hópinn fyrir ofan bæinn og voru þau þá 167. Á meðfylgjandi myndum eru þær sýndar og ferðir þeirra.
Einn veturgamall tarfur í hópnum í Arnórsstaðamúla festist í vírneti við gamla tún Víkings í Skógargerði. Var hann losaður og merktur. Þetta er líklega a.m.k. fjórði tarfurinn sem festist þarna í þessarri niðurníddu girðingu sem þarf að fjarlæga snarlega.

Hreindýr

Hreindýr HreindýrHreindýr

Hreindýr HreindýrHreindýr

Hreindýr HreindýrHreindýr

Síðast uppfært ( Mánudagur, 18 Janúar 2010 11:33 )