Stunning Instagram Logo Vector Free Download 43 For New Logo with Instagram Logo Vector Free Download 1 1024x1024 fb40x40 unionjack

2018 Ester LogoNA PDF vefstr

logona314

síðasti skiladagur tilnefninga er 24. apríl

Félag íslenskra safna og safnmanna og Íslandsdeild ICOM (Alþjóðaráð safna) standa saman að íslensku safnverðlaununum sem veitt eru annað hvert ár safni sem með starfsemi sinni þykir skara fram úr. Óskað er eftir ábendingum frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum. Til greina koma söfn og einstök verkefni á sviði safna sem þykja til eftirbreytin og íslensku safnastarfi til framdráttar. Bent er á að tilnefna má sýningar, útgáfur og annað er snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi.

 

Valnefnd velur þrjú söfn eða verkefni sem tilnefnd verða til verðlaunanna og fer afhending fram á alþjóðadegi safna þann 18. maí 2008.


Ábendingum skal skilað til Safnaráðs Laufásvegi 12, 101 Reykjavík eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 25. apríl 2008 merk Safnverðlaun

Við hvetjum safnmenn til að áframsenda þessa beiðni sem víðast og kynna hana á heimasíðu safns síns.

Kveðja fyrir hönd FÍSOS og ICOM Ágústa Kristófersdóttir og Ólöf K SIgurðardóttir

Náttúrustofa Austurlands

  • Kt: 461094-2529
  • Sími: 477-1774
  • Netfang: na(hjá)na.is

Starfsstöð í Neskaupstað

Bakkavegi 5
740 Neskaupstaður

Starfsstöð á Egilsstöðum

Tjarnarbraut 39b
700 Egilsstaðir