Náttúrufræðinámskeið fyrir börn - Neskaupstaður
Í júní verður boðið upp á fimmdaga námskeið í náttúrufræðum fyrir 8-10 ára börn.
Markmið námskeiðsins er að kynna krökkum fjölbreytt dýra- og plöntulíf í íslenskri náttúru. Farið verður í fjöruferð, í læki og tjarnir, upp í skógrækt og í fleiri vettvangsferðir. Fuglar verða skoðaðir, smádýrum og plöntum safnað og komið með í hús og skoðað undir víðsjá og þau greind.
Enn er laust á námskeiðið í Neskaupstað 27.júní -1.júlí.
Námskeiðið stendur yfir frá kl. 9-12 hvern dag og mæta þátttakendur með nesti, stígvél og hlífðarföt. Innritun fer fram hjá Náttúrustofu Austurlands á netfangið na[hjá]na.is , fram til 23.júní. Námskeiðsgjald er 3000 kr. Athugið einungis 10 börn komast á námskeiðið.