Æðarfugl (Somateria mollissima)
Æðarfuglinn er algengasta öndin í íslenskri náttúru. Hann er okkar mesti nytjafugl og þarf um 60 hreiður til að framleiða 1 kg af hreinsuðum dún. Hann heldur sig nær eingöngu á sjó og verpir, ólíkt öðrum öndum, við sjóinn meðfram ströndum landsins.
Stærstu æðarvörpin eru á Vestfjörðum en á Austurlandi eru nokkur allstór vörp s.s. í Andey, Seley, við Hólma í Reyðarfirði, Loðmundarfirði og Bjarnarey.
Nánar má lesa um æðarfuglinn á Íslenska fuglavefnum og Vísindavefnum.