Lundi (Fratercula arctica)
Ungi lundans nefnist pysja (í sumum landshlutum kofa og einnig pésa og lundungi). Pysjan dvelst í hreiðrinu á meðan foreldrarnir fæða hana. Þegar foreldrarnir halda á haf út síðsumars yfirgefur pysjan hreiðrið og fer, eins og foreldrarnir, út á haf. Í Vestmannaeyjum gerist það alloft að pysjurnar villast á leið og enda í ógöngum í bænum. Þá hjálpa börn í bænum pysjunum að komast leiðar sinnar með því að safna þeim saman og sleppa til hafs.
Lundi er algengasti fuglinn af svartfuglaætt á Íslandi. Hann er auðþekktur á kubbslegri líkamsbyggingu og hlutfallslega stóru höfði. Sérstakt útlit hans laðar marga erlenda ferðamenn til landsins á hverju sumri.
Nánar má lesa um lundann á Íslenska fuglavefnum og Vísindavefnum.