Rjúpa
Rjúpan er eini hænsnafuglinn sem lifir villtur á Íslandi. Karlfuglarnir nefnast karrar en kvenfuglarnir ganga venjulega undir heitinu rjúpa eða hæna.
Rjúpan er þýðingarmesta fæða fálkans á Íslandi. Fjöldi fálkapara sem verpa á Íslandi ræðst af ástandi rjúpnastofnsins. Rjúpnastofninn sveiflast mikið þannig að fjöldi rjúpna er yfirleitt í hámerki á 10 ára fresti. Fálkinn tekur nær eingöngu karra á vorin og stafar það af því að á þeim tíma er hann enn hvítur en rjúpan er þá orðin brún og sést síður. Einnig hreykir karrinn sér upp á holt og hæðir og er því mjög áberandi.
Rjúpan er einnig eftirsóknarverð fæða mannfólksins á jólunum, sérstaklega með brúnuðum kartöflum, púrtvínssósu og jólöli.
Nánar má lesa um rjúpuna á Íslenska fuglavefnum og Vísindavefnum.