Spói (Numenius phaeopus)
Hinn einkennandi söngur spóans sem margir tengja við vorboða kallast vell. Stundum er jafnvel sagt að spóinn velli graut.
Spóinn er vaðfugl þó hann haldi oft á tíðum til á mólendi á varptíma. Langan, bogadreginn gogginn notar hann til að stinga ofan í jarðveginn í þeim tilgangi að finna ýmis konar jarðvegsdýr. Goggurinn er afar næmur sem auðveldar spóanum að veiða dýrin í jarðveginum.
Nánar má lesa um spóann á Íslenska fuglavefnum og Vísindavefnum.