Súlukast
Súlan (Morus bassanus) er stundum kölluð drottning Atlantshafsins vegna þess hve tignarleg hún er og það nafn á fullan rétt á sér, sérstaklega þegar fylgst er með henni á veiðum. Veiðiaðferð súlunnar nefnist súlukast og vísar nafnið til þess þegar hún stingur sér ofan í sjóinn eftir fiski sem hún hafði séð úr lofti. Súlan tekur dýfu úr allt að 40 m hæð og með vængina lagða að síðunni getur hún náð í fisk á allt að 6 m dýpi.
Súlan á Náttúrugripasafninu er einmitt í miðri dýfu og sjá má hvernig hún verður nánast eins og ör í laginu við veiðar sem gerir henni kleyft að ná miklum hraða og stinga sér djúpt ofan í sjóinn.
Nánar má lesa um súluna á Íslenska fuglavefnum og Vísindavefnum.